Label

Frá losun yfir í ákvarðanir

Okkar hlutverk

UI Hönnun
UX Hönnun

Viðskiptavinur

Advania

Lýsing

Advania vildi hjálpa viðburðahöldurum að skilja umhverfisáhrif ákvarðana sinna. Við hönnuðum kolefnisreikni sem er notendavænn, sjónrænn og byggir á traustum gögnum — sem gerir það einfalt (og jafnvel skemmtilegt) að taka ákvarðanir með minni losun.

Fréttir af skrifstofunni: Diego skildi kreditkortið sitt eftir á borðinu — kleinuhringir fyrir alla!

Markmið

Kolefnisgögn geta verið óáþreifanleg og erfitt að lesa úr þeim.
Við gerðum flóknar útreikninga skýra og nothæfa — þannig að viðburðahaldarar geti skoðað valkosti, borið saman losun og séð hvernig litlar breytingar, eins og að skipta út réttum á matseðli, geta haft raunveruleg áhrif.

UX Hönnun

Hannað fyrir forvitni

Reiknirinn vekur forvitni. Notendur geta leikið sér með mismunandi uppsetningar viðburða — eins og stærð rýmis, veitingar og samgöngur og séð hvernig hver þáttur hefur áhrif á heildarlosun. Það er fljótlegt að prófa, einfalt að endurstilla og hannað til að gera sjálfbærni aðgengilega — ekki yfirþyrmandi.

‍Útlit

Gögn sem skipta máli — framsett með skemmtilegum hætti

Innan ramma vörumerkis Advania mótuðum við viðmót sem er vinalegt og trúverðugt í senn. Djörf litaval, skýr tákn og hreinar uppsetningar gera flókinn samanburð einfaldan. Gröf og niðurstöður eru sett fram á skýran og aðgengilegan hátt — með léttum, leikandi blæ sem gerir sjálfbærni auðskiljanlega.

Þróun

Þar sem hönnun mætir gögnum

Við unnum þétt með innra þróunarteymi Advania að því að lífga verkfærið. Reiknirinn byggir á víðtækum gagnagrunni og flóknum algrímum sem meta losun út frá upplýsingum um viðburði. Við lögðum áherslu á að hönnunin félli óaðfinnanlega inn í kerfið, að notendaflæði og spurningar væru eðlileg og skýr, og að niðurstöður væru bæði nákvæmar og auðlesnar — í takt við stíl Advania, með hæfilegum skammti af karakter.

Skýrleiki fram yfir flækju
Meira en tölur — reiknirinn gerir skipuleggjendum kleift að taka markvissar og sjálfbærar ákvarðanir, án sektarkenndar.

2k+ Average “distribution of bananas” per event

150 Meðalþyngd (þungra) kinda í kg

100+ Fjöldi ramma í Figma

Opnir flipar: þetta fór aðeins úr böndunum

Næsta verkefni

Gefum þjónustuþegum stjórn

UI Design
UX Design
Accessibility
Global design system