Label

Endurhönnun vefverslunar

Okkar hlutverk

Notendaupplifun
Viðmótshönnun

Viðskiptavinur

Elko

Lýsing

ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, þurfti heildarendurnýjun á vefversluninni til að bæta skýrleika, nothæfni og umbreytingarhlutfall. Markmiðið var að hanna upplifun sem gerir það áreynslulaust að skoða, bera saman og leita að vörum, á meðan heildarupplifunin helst vinaleg, aðgengileg og sjónrænt lifandi.

90% af kóðanum er til þess að laga 10%.

Markmið

Markmið okkar var að hanna notendamiðaða vefverslun sem setur vörurnar í forgrunn, einfaldar ákvörðunartöku og endurspeglar aðgengilega, hjálpsama og skemmtilega vörumerkjapersónu ELKO.

Grunnur

Skýr og markviss notendaupplifun

Við byrjuðum á að byggja upp hönnunargrunn sem samræmdist vörumerkjaímynd ELKO. Ljósir litir, skýrt letur og fíngerð áferð skapa hlýlegt yfirbragð og móta notendaupplifun sem er einföld, skýr og aðgengileg.

Flæði

Einfalt flæði fyrir notendur

Upplýsingaflæðið var sett upp af natni svo notendur rötðuðu auðveldlega um vefinn án þess að fá of mikið í fangið. Hvert skref var mótað til að vera eðlilegt, leiðandi og hnökralaust, þannig að athyglin færi þangað sem hún á að vera: á vörurnar.

Fókus

Áhersla á það sem skiptir mestu

Vörurnar voru settar í forgrunn með myndefni sem dregur skýrt fram helstu eiginleika og ávinning. Með vinalegum, hjálpsömum texta og skýru myndefni verða vörurnar aðalatriðið. Það gerir verslunina bæði skemmtilega og skilvirka.

Pepsi hét einu sinni „Brad’s Drink“. Ekki alveg jafn grípandi, er það nokkuð?

Næsta verkefni

Allt á iði

Mörkun
Stefnumótun