
Ég fíla að dilla, dilla
Okkar hlutverk
Endurnýjun vörumerkis
Sjónræn ásýnd
Lógóhönnun
Hreyfihönnun
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Hugmynd
Aha! augnablikið
Hvað er vefsíða annað en fullt af pixlum? Og hvað gerir SVEF? Hvar býr SVEF? Hvar gerir SVEF alla sína SVEF-legu hluti?! Í pixlinum! Þess vegna byggir sjónræn ásýnd SVEF á pixlaðri formgerð sem tákn fyrir það hvernig SVEF lifir og dafnar í stafrænum heimi. Ásýndin tekur yfir skjáinn, hreyfist um hann og “ownar” hann. Og stefnir alltaf fram á við

Einkenni
Nánastendalaust lógósafn
Og lógóið þurfti að fá að taka sitt pláss. Með lifandi, sveigjanlegu ogeirðarlausu eðli SVEF að leiðarljósi sköpuðum við merki sem aldrei er alvegeins… en... samt alltaf það sama… í mörgum birtingarmyndum. Með því að breytaum form opnast nánast endalausir möguleikar fyrir merki SVEF.
Við settum líka mjög stranga reglu um hvernig ætti að velja merkið: lokaaugunum og velja eitt lógóform úr skráarlistanum.

Drifkrafturinn
Hvernig þessi vitleysa byrjaði
En SVEF er ekki bara merki. Vissir þú að þetta byrjaði allt með hópi fólks sem hittist yfir drykk og spjallaði um hönnun? Nú veistu það. SVEF hefur alltaf verið afslappað, líflegt og fullt af karakter. Þess vegna er tónninn leikandi, djarfur og stundum örlítið ósvífinn.



Karakter
Alvara, en samt ekki
Vörumerkiðendurspeglar einmitt það: eirðarlausir, líflegir litir sem mætast í djörfumandstæðum og láta augun dansa. Breytilegt letur sem er sífellt á hreyfingu ogskammast sín ekkert fyrir það. Og auðvitað, sturlaður varningur.


