Label

Gjöfin að gefa

Okkar hlutverk

Vörumerkjahönnun
Teikningar
Vefhönnun

Viðskiptavinur

Fagkaup

Lýsing

Í desember 2024 setti Fagkaup af stað jólaátakið Gefum saman og færði fókusinn frá hefðbundnum fyrirtækjagjöfum yfir í að styðja við björgunarsveitir landsins. Í stað þess að fá gjöf gátu starfsmenn ráðstafað framlagi sínu til björgunarsveitar að eigin vali, ásamt því að senda kveðju.

Amount of layers in Procreate: 43

Markmið

Hlýlegt og nostalgískt jólaátak sem umbreytti fyrirtækjagjöfum í beinan stuðning við íslenskar björgunarsveitir.

Verkefnið

Hátíðarstemning

Í desember 2024 setti Fagkaup af stað jólaátakið Gefum saman og færði fókusinn frá hefðbundnum fyrirtækjagjöfum yfir í að styðja við björgunarsveitir landsins, Landsbjörg. Starfsmenn gátu ráðstafað framlagi sínu til björgunarsveitar að eigin vali, ásamt því að senda hátíðarkveðju.

Til að styðja við verkefnið hönnuðum við hlýlegan, jólaþemaðan vef innblásinn af vintage jólakortum — með mjúkum litum, hátíðlegum leturgerðum og ríkulegri áferð sem skapaði einlæga og nostalgíska jólastemningu.

Teikningar

Jólasveinninn

Þegar vefurinn er opnaður tekur Björgunarsveinninn á móti þér — hlýr, gjafmildur og vinalegur karakter. Hann er klæddur klassískum jólasveinabúningi með skírskotunum í búnað Landsbjörg og teiknaður í vintage stíl sem fellur vel að heildarútliti og stemningu vörumerkisins.

An Illustration of search and rescue santa claus

Ferlið

Hönnun

Björgunarsveinninn was created as a unique costume for Fagkaup’s annual Christmas party, where Santa made an appearance to entertain guests. The design aimed to blend the classic look of Santa Claus with recognizable elements from ICE-SAR uniforms. The red costume features a red hat with a reflective patch, reinforced elbows and knees, hiking boots, and a backpack. Instead of a belt, a climbing rope is tied around the waist. Developed in collaboration with ICE-SAR, the design ensured the costume remained distinct from official rescue gear.

‍Útkoma

Tæknin á bakvið

Þetta einfalda vefforrit var hannað með lágmarksflækjustigi - sleppt var flóknum bakendum og efnisstjórnunarkerfum. Lausnin er í grunninn einföld HTML síða, MongoDB og Retool fyrir einfalt yfirferðarkerfi. Ekkert flóknara en það.

1449 einstaklingar gáfu gjöf

94 Björgunarsveitir fengu gjafir

1000+

Á Íslandi eigum við 13 jólasveina — og enginn þeirra er sérlega góður.

Næsta verkefni

Turning emissions into decisions

UI Hönnun
UX Hönnun