
Hönnunarkerfið Konfetti
Okkar hlutverk
Hönnunarkerfi
UI Hönnun
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Sameinig
Að sameina vörumerkið
Þegar Nova stækkaði fór sjónrænt tungumál vörumerkisins að brotna upp og það varð erfiðara að viðhalda heildstæðri upplifun. Konfetti leysti það með því að sameina vörumerki Nova þvert á vefi, öpp, innskráningarkerfi og markaðsherferðir. Kerfið varð sameiginlegur grunnur fyrir vörumerkið og tryggði samræmi á öllum snertiflötum, með upplifun sem var alltaf ómistaklega Nova.


Skalanleiki
Hannað fyrir hvaða skjá sem er, hvenær sem er
Konfetti er grid-byggt hönnunarkerfi með stöflun íhluta, þar sem hvert hönnunarelement tengist við yfiríhlut. Ein breyting getur þannig flætt í gegnum öll tilvik kerfisins, frá hnöppum til táknmynda, og heldur öllu uppfærðu með lágmarks fyrirhöfn. Leturkerfið var einnig hannað með skalanleika í huga. Með sérsniðinni formúlu aðlagast leturstærðir fallega að mismunandi skjástærðum og tryggja skýra og samræmda upplifun á öllum tækjum.




Nýtni
Hraðari verkefni, minna umstang
Konfetti dregur verulega úr framleiðslutíma og innri vinnu. Með fjölbreyttu safni skrautlegra þátta, skalanlegum einingum og tilbúnum lausnum fyrir upplýsingaskipulag og notendaflæði geta teymi komið verkefnum hraðar af stað, án þess að fórna sjónrænu og virknilegu samræmi.



