
Smakk af betri notendarupplifun
Okkar hlutverk
Vef aðgengi
Fjölvörumerkja hönnunarkerfi
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Sjónræn stefna
Jafnvægi í útliti og yfirbragði
Í samstarfi við Ölgerðina mótuðum við endurnýjaða sjónræna stefnu fyrir stafræna upplifun þeirra. Með uppfærðum vörumerkjaleiðbeiningum að leiðarljósi hönnuðum við stílhreint og faglegt viðmót sem er jafnframt hlýlegt og kraftmikið. Rúnnuð horn, fjölbreytt lífstílsmyndefni og rausnarlegt hvítt rými skapa jafnvægi, aðgengi og fagmennsku í allri hönnuninni.

UI/UX hönnun
Bætt notendaupplifun og aukið aðgengi
Eftir að sjónræn stefna var skilgreind lögðum við áherslu á að bæta notendaupplifun í uppbyggingu vefsins. Umbætur voru gerðar bæði á leiðarkerfi og innan efnis á síðum, þannig að upplýsingar urðu aðgengilegri fyrir fjárfesta, viðskiptavini og væntanlegt starfsfólk. Jafnframt verða gildi og hlutverk fyrirtækisins skýrari í nýju uppsetningunni og upplýsingaskipulaginu.





Hönnunarkerfi
Hönnunarkerfi fyrir mörg vörumerki
Við bjuggum til samræmt hönnunarkerfi með endurnýtanlegum og móttækilegum íhlutum, sveigjanlegan ramma sem þjónar ekki aðeins Ölgerðinni heldur einnig vörumerkjafjölskyldu hennar, meðal annars Danól og Iceland Spring. Kerfið gerir hverju vörumerki kleift að halda sjónrænum tengslum við heildina, á meðan sérkenni þess fá að njóta sín. Með ítarlegri UX-skjölun, hönnunarbreytum og skýrum UI-notkunardæmum varð til skalanlegt kerfi sem heldur jafnvægi milli samræmis og sérstöðu.



7 Figma hönnun & Figjam skjöl
128 Einingar
103 Figma Ummæli

