
Ný ásýnd fyrir nýtt tímabil
Okkar hlutverk
Auglýsingar
Teikningar
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Merkið
Frá fána til segls
Upprunalegt merki Pírata er sterkt og auðþekkjanlegt, bæði hér heima og á alþjóðavísu. Í stað þess að endurhanna það frá grunni fínpússuðum við formið.
Það sem áður mátti lesa sem fána minnir nú frekar á segl, tákn um framfarir, hreyfingu og skýra stefnu fram á við. Um leið verður myndmálið sjálfbærara og umhverfismeðvitaðra, án þess að tengingin við uppruna flokksins glatist.


Stíll
Litir og leturgerð
Við uppfærðum hinn einkennandi fjólubláa lit Pírata, dýpkuðum hann og gerðum hann sérstöðumeiri, ásamt því að bæta við stuðningslitum sem gefa kerfinu meiri sveigjanleika.
Í leturkerfinu notum við Big Shoulders Display fyrir kraftmiklar fyrirsagnir og Inter fyrir meginmál. Bæði eru opin Google-letur og saman mynda þau skýrt, nútímalegt og aðgengilegt leturkerfi.



Auglýsingar
Lífleg-auglýsingaherferð
Auglýsingastíllinn er beinn, kraftmikill og innblásinn af plakathefð, hannaður til að virka bæði á stafrænum miðlum og í prenti. Með stórum fyrirsögnum, sterkum andstæðum og lykilskilaboðunum „Kjósum öðruvísi“ hvetur herferðin kjósendur til að brjóta upp gömul mynstur og horfa til nýrra pólitískra leiða.






Myndmál
Tól fyrir alla snertifleti
Til að styðja við nýju ásýndina hönnuðum við fjölbreytt sjónrænt efni, þar á meðal sérhönnuð tákn, kynningarsniðmát, límmiða, nælur og annað herferðarefni. Þannig fékk Pírataflokkurinn samræmt og auðþekkjanlegt útlit sem virkar á öllum miðlum og í ólíkum samhengi.





