
Byrjum á vörumerkinu
Okkar hlutverk
Myndmál
Vörumerkja hönnun
Nafnamótun
Hreyfi Hönnun
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið

Stofna sprotafyritæki
Algengar ástæður þess að sprotafyrirtæki ná ekki flugi
Vanrækt eða ómarkviss vörumerkjavinna er ein af algengum ástæðum þess að sprotafyrirtæki ná ekki árangri. Sterkt vörumerki hjálpar fyrirtæki að byggja upp trúverðugleika innan síns markaðar, laða að fjárfesta og síðar nýja viðskiptavini. Góð vara ein og sér er ekki nóg. Við mótum vörumerkjastefnu sem hjálpar fyrirtækinu og vörunni að skera sig úr samkeppninni. Með skýrri stefnu tryggjum við jafnframt að allir hlutar fyrirtækisins þróist í sömu átt, svo vöxturinn verði markviss, sjálfbær og auðveldari að stýra til framtíðar.

Vertu alvöru keppinautur
Sterkt fyrirtæki þarf sterkt vörumerki
Fyrri ásýnd Synia endurspeglaði ekki styrkleika fyrirtækisins, nýsköpunina í vörunni eða sérþekkinguna sem býr að baki. Nafnið var óskýrt, miðlunin flókin og heildaryfirbragðið of almennt miðað við stöðu og möguleika fyrirtækisins.
Við mótuðum sérsniðna stefnu fyrir Synia út frá framtíðarsýn, gildum, markaði og samkeppnisumhverfi. Sú vinna náði yfir nýtt nafn, skýrari tón og nýtt sjónrænt kerfi. Í framhaldinu hönnuðum við lykilefni fyrir sprotafyrirtækið, þar á meðal virðistillögu, pitch deck og nafnspjöld. Einnig útbjuggum við rafrænar vörumerkjaleiðbeiningar til að tryggja samræmda notkun vörumerkisins til framtíðar.



Tækifærin
Við sáum tækifærið og tókum skrefið
Við sáum mikla þróunarmöguleika hjá Synia og ákváðum að ganga lengra en hefðbundin vörumerkjavinna.
Til að sýna hvernig nýja ásýndin gæti nýst í raunverulegu samhengi prófuðum við hana á stafrænum vörum Synia. Markmiðið var að sýna hvernig fyrirtækið gæti nýtt stöðu sína sem sprotafyrirtæki, vöruna sína og tækifærin á markaðnum betur. Við hönnuðum prótótýpu af stafrænu vörunni með bættum aðgengislausnum, skýrari notendaviðmótum og nýju vörumerkjaútliti. Auk þess hönnuðum við prótótýpu af vefsíðu með helstu sölupunktum fyrirtækisins og endurskrifuðum texta, tilbúna til áframhaldandi þróunar.


Hugsa framm í tímann
Sterk byrjun sem einfaldar framhaldið
Í lok fyrsta áfanga verkefnisins stendur Synia með sterkari stöðu á markaði og skýrari stefnu fyrir framhaldið.
Fyrirtækið hefur nú þekkingu, tól og grunn til að halda áfram að byggja upp markvissa miðlun og vaxa með henni. Við deildum einnig fleiri tækifærum til að styrkja vöruna, auka möguleika hennar og bæta sýnileika hennar á markaði.



2KFjöldi hluta í möppu
81%81% meiri punktadella
12Fjöldi skissaðra A5-síðna

