
Heildstætt auglýsingarkerfi
Okkar hlutverk
UI Hönnun
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Markhópagerð
Skýr og einföld markhópagerð
Við hönnuðum markhópagerðina þannig að hún væri bæði öflug og einföld í notkun. Auglýsendur geta skilgreint rétta hópinn með nákvæmum stillingum fyrir aldur, staðsetningu, áhugasvið og kauphegðun, án þess að missa yfirsýn. Niðurstaðan er skýrt og aðgengilegt viðmót sem gerir markvissa miðun hraðari og skilvirkari.


Greining
Snjallari markhópa-greining
Snjallari markhópagreining
Skýr skipting markhópa er lykillinn að árangursríkum auglýsingum. Þess vegna hönnuðum við kerfi sem gerir auglýsendum kleift að búa til, aðlaga og stjórna hópum á einfaldan og leiðandi hátt. Með “drag&drop “virkni og sveigjanlegum síum verður ferlið hraðara, skýrara og mun aðgengilegra. Niðurstaðan er tól sem sparar tíma, eykur yfirsýn og hjálpar notendum að koma auga á ný tækifæri.


Innleiðing
Einfaldari byrjun, betri upplifun
Það getur verið yfirþyrmandi að byrja með tómt blað. Þess vegna hönnuðum við leiðsagnardrifið upphafsferli, Cold Start, sem leiðir nýja notendur skref fyrir skref í gegnum fyrstu verkefnin. Með skýrum leiðbeiningum, einföldum verkþáttum og sérsniðnum tillögum verður ferlið aðgengilegra og auðveldara í notkun. Niðurstaðan er því hnökralaus byrjun, styttri leið að uppsetningu til fyrstu herferðar og betri upplifun frá fyrsta degi.


