.png)
Vönduð og markviss sjónræn ásýnd
Okkar hlutverk
Mörkun
Vefhönnun
Vefhönnun
Viðskiptavinur
Yrkir Fasteignafélag
Lýsing
Yrkir er nýlega stofnað fasteignafélag í eigu Festi, stofnað með það að markmiði að byggja og reka fasteignir um allt land. Mikilvægt var að sjónræn sjálfsmynd Yrkis endurspeglaði eðli starfseminnar, þar sem arkitektúr mætir nútímalegri og tímalausri ásýnd.
Markmið
Yrkir fasteignir leituðu til okkar með metnaðarfulla sýn á útlit og yfirbragð vörumerkisins. Markmiðið var að það stæði sjónrænt upp úr, en væri samt rótfast í strúktúr, skýrleika og þeirri arkitektónísku nálgun sem einkennir starfsemina.
Mörkun
Letur
Grunnur vörumerkis Yrkis sækir innblástur í arkitektateikningar, lóðagögn, kortlagningu og rýmissamsetningar. Merkið er kraftmikið og strúktúrað samspil bókstafanna „Y“ og „K“ sem myndar nánast brútalíska lögun.
Samt gefa uppstreymi formsins og greinótt uppbygging því lífræna tilfinningu, líkt og blóm sem opnast. Þetta er abstrakt vísun í merkingu orðsins „yrkir“: að rækta, skapa og þróast.




