Label

Frá sýn til Visku

Okkar hlutverk

Mörkun
Hönnunar kerfi
Vefhönnun

Viðskiptavinur

Viska Stéttarfélag

Lýsing

Viska, stéttarfélag, leitaði til okkar með það markmið að þróa vörumerki sitt og hanna vefinn.

Pepsi hét einu sinni „Brad’s Drink“. Ekki alveg jafn grípandi, er það nokkuð?

Markmið

Markmiðið var að móta stílhreint, norrænt og fágað yfirbragð sem vekur traust og gefur tilfinningu fyrir stöðugleika. Útlitið átti að höfða bæði til háskólamenntaðra fagfólks á vinnumarkaði og nemenda í háskólanámi.

Mörkun

Minimalísk sjálfsmynd

Við hófum verkefnið með stylescape-vinnustofu þar sem við kynntum þrjár sérsniðnar tillögur til að móta sjónræna stefnu Visku. Endanlega sjálfsmyndin byggir á stílhreinu orðmerki með einkennandi rúnnuðum hornum, studdu af lágmarks litatöflu með hlýjum svörtum tónum, hreinum hvítum og jarðlitum. Þetta jafnvægi milli einfaldleika og hlýleika gerir vörumerkið bæði faglegt og aðgengilegt.

Uppsetning

Skýr og þekkjanleg hönnun

Sjónrænn stíll Visku er stílhreinn en um leið sérkennilegur. Eitt rúnnað horn er notað með samræmdum hætti í ljósmyndum, römmum og nafnspjöldum og gefur öllu myndefni auðþekkjanlega „undirskrift“. Í sumum tilfellum eru einnig notaðar bogalínur sem grafískir þættir. Þær bæta við fjölbreytni en halda samt heildarútlitinu samræmdu.

Samstarfið við Jökulá hefur verið frábær reynsla fyrir okkur og Viska-heildin er einstaklega vel útfærð hönnun. Það sem aðgreinir Jökulá er sveigjanleiki í þjónustu og beint samtal við hönnuðina, sem sparar mikinn tíma og styttir boðleiðirnar. Það skiptir okkur hjá Visku miklu máli, þar sem við erum stöðugt að vinna að þróun og endurbótum.
Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta og markaðsmála hjá Visku.

Hvað við gerum

Vettvangur fyrir ævilangt nám

Vefurinn var hannaður til að þjónusta bæði einstaklinga og fyrirtæki og býður upp á námskeið og verkfæri til færniuppbyggingar. Hönnunin endurspeglar gildi Visku um skýrleika og notendamiðaða hugsun og skapar stafræna upplifun sem er fagleg, leiðandi og hlýleg.

Niðurstaða

Þekking gerð aðgengileg

Viska.is stendur undir nafni og býður upp á skýran og auðveldan vettvang sem styður markmiðið um ævilangt nám. Með því að sameina fagmennsku og hlýlegt yfirbragð styrkja vörumerkið og vefurinn ímynd Visku og gera nám bæði hvetjandi og aðgengilegra fyrir alla.

90% af kóðanum er til þess að laga 10%

Næsta verkefni

Design system mockups showing customizable footer and news card components for Olgerðin web experience, with layout examples for large and small breakpoints.

Smakk af betri notendarupplifun

UX/UI hönnun
Vef aðgengi
Fjölvörumerkja hönnunarkerfi