Label

Björninn í nýjum búning

Okkar hlutverk

Teikningar
Mörkun
Varningur

Viðskiptavinur

Björninn

Lýsing

Björninn,stofnaður árið 1990, er eitt fárra íshokkíliða á Íslandi og er þekktur fyrirkraftmikinn anda og tryggan stuðningsmannahóp. Við unnum með félaginu að því aðendurhugsa sjónræna sjálfsmynd þess, hanna nýja búninga og móta vörulínu semeykur tekjur og styrkir tengslin við stuðningsmenn.

Fréttir af skrifstofunni: Diego gleymdi veskinu sínu á borðinu — frír kleinuhringur fyrir alla

Markmið

Markmiðið var að heiðra sögu Bjarnarins um leið og ásýnd félagsins var færð í nútímalegra útlit. Stoltið vaknaði á ný hjá leikmönnum sem og stuðningsmönnum og samfélaginu í kringum félagið. Útkoman var meira en ný ásýnd, hún varð sameiningartákn fyrir alla sem standa með félaginu.
Hockey player wearing a Björninn branded hockey jersey in the hockey rink.

Ímynd

Björninn í nýjum búningi

Ferlið hófst með skissum og ótal útfærslum af birninum. Við fínpússuðum merkið þar til lokaútgáfan náði að heiðra hefðina en um leið færa hana í nútímalegan búning. Útkoman er kraftmikið og stílhreint merki sem táknar styrk, seiglu og sjálfstraust og fangar anda liðsins.

Treyjur

Fár breytingar, stór áhrif

Við endurhönnuðum leiktreyjur Bjarnarins með látlausri en áhrifaríkri uppfærslu sem hjálpar þeim að skera sig úr í litlu en ástríðufullu hokkísamfélagi Íslands. Sérhönnuð númer gáfu hverri treyju persónulegri blæ, settu leikmennina í forgrunn og styrktu tengslin milli liðsins og stuðningsfólksins.

Varningur

Varningur fyrir alla

Til að styrkja tengslin við stuðningsmenn utan íssins þróuðum við vörulínu af “swagi”. Það var allt frá bollum yfir í húfur og margt þar á milli. Enginn aldurhópur skilinn eftir og eitthvað fyrir alla. Hver vara var hönnuð til að endurspegla nýju ásýndina og gefa stuðningsmönnum fleiri leiðir til að sýna liðinu stuðning.

Opnir flipar: líklega alltof margir

Næsta verkefni

Endurbætt vefverslun

UX Hönnun
UI Hönnun