
Lifandi og gagnvirkt nám
Okkar hlutverk
Hönnunarkerfi
Leikjahönnun
Teikningar
Viðskiptavinur
Lýsing
Markmið
Verkefnið
Markmið verkefnisins
Vísinda og fræðslusetur Suðurnesja tekur reglulega á móti skólaferðum barna og markmið okkar var að kveikja áhuga þeirra á safninu, dýpka upplifunina og örva forvitnina. Við tókum þessari áskorun með miklum krafti.


Heimurinn
Sköpun heims
Í upphafi verkefnisins var leikjahugmyndin enn í mótun. Viðskiptavinurinn lagði fram fyrstu hugmyndir að persónum og grófa fræðsluáætlun. Í nánu samstarfi við Vísinda og fræðslusetur Suðurnesja byggðum við upp litríkann og grípandi heim, skilgreindum umhverfi, persónur og spilun. Hópurinn samanstendur af Fróðleiks-Fúsa, Vísinda-Lindu, RostunGulla, snjöllu hrafnunum Reyni og Rýni, líffræðingnum Carl von Linné og Línu Appelsínu, sem leiða leikmenn áfram og deila skemmtilegum dýrafróðleik í gegnum leikinn.


Teikningar
Teikningar
Til að gera leikinn aðgengilegan yngstu notendunum byggðum við hann í kringum gagnvirkt kort sem sækir innblástur í skipulag Vísinda og fræðslusetursins. Á kortinu eru litrík, myndskreytt dýr sem börn geta borið saman við raunverulegar sýningar, með leiðsögn frá Fúsa og félögum. Hönnunin var mótuð með skýrleika og sterka sjónræna framsetningu fyrir spjaldtölvur í huga. Þegar heimurinn var kominn á sinn stað tók næsti áfangi við: að teikna 61 dýramynd og fínstilla spilunina þannig að hún drægi fram fjölbreytt dýralíf Íslands.



Niðurstöður
Spilum saman
Í upphafi verkefnisins var leikjahugmyndin enn í mótun. Viðskiptavinurinn lagði fram fyrstu hugmyndir að persónum og grófa fræðsluáætlun. Í samstarfi við Vísinda og fræðslusetur Suðurnesja mótuðum við litríkann og grípandi heim og skilgreindum umhverfi, persónur og spilun. Hópurinn samanstendur af Fróðleiks-Fúsa, Vísinda-Lindu, RostunGulla, snjöllu hrafnunum Reyni og Rýni, líffræðingnum Carl von Linné og Línu Appelsínu, sem leiða leikmenn áfram og deila skemmtilegum dýrafróðleik í gegnum leikinn.




