Label

Nýtt vörumerki og stafrænt umhverfi Fugla

Okkar hlutverk

Mörkun
Hönnunarkerfi
Vef hönnun

Viðskiptavinur

Fuglar

Lýsing

Fuglar er reynslumikið hugbúnaðarfyrirtæki með tveggja áratuga sögu og tryggan viðskiptavinahóp. Á fyrsta fundi okkar beindum við sjónum að því að endurnýja vörumerkið — móta ferskara útlit sem heldur áfram að byggja á kjarnagildum þess: trausti og öryggi.

Iceland has no native woodpeckers — its trees are too few and young!

Markmið

Markmið Fugla er að skapa nýstárlegar hugbúnaðarlausnir byggðar á tveggja áratuga þekkingu og reynslu — þar sem traust, öryggi og tæknileg gæði eru í forgrunni. Við vinnum að því að móta hnökralausa og notendavæna stafræna upplifun með nútímalegri hönnun, skýrum skilaboðum og fersku, samtímalegu vörumerki sem endurspeglar kjarnagildi okkar: nýsköpun, frelsi og áreiðanleika.

Merki

Samtímalegt merki með skýra merkingu

Nýja merki Fugla sækir innblástur í hornklofa úr forritun og bókstafinn „F“ og myndar þannig skýrt, geometrískt tákn sem endurspeglar tæknilegar rætur fyrirtækisins. Abstrakt, fuglalaga formið vísar í nafnið Fuglar — og táknar frelsi, nýsköpun og hreyfingu áfram á við. Útkoman er merki sem sameinar traust, áreiðanleika og sköpunarkraft.

LETURFRÆÐI

Skýr og persónuleg hönnun

Inter var valið fyrir skýra og þægilega framsetningu í lengri textum, á meðan Degular gefur fyrirsögnum meiri karakter. Saman mynda þau rödd sem er nútímaleg, aðgengileg og auðlesin á öllum miðlum.

Vörumerki

Ferskt yfirbragð sem byggir á trausti

Endurmótun Fugla byggir á djúpum dökkbláum og skýrum hvítum litum sem endurspegla traust og stöðugleika, ásamt lime-grænum áherslulit sem gefur orku og nýsköpun. Saman skapa litirnir jafnvægi milli fagmennsku og sköpunar.

STAFRÆNT

Hnökralaust stafrænn veruleiki

Nýtt vörumerki kallaði á jafn sterkt stafrænt heimili. Við unnum með Fuglum að hönnun vefs sem dregur fram nýsköpun, einfaldleika og tæknilega sérþekkingu. Skýr uppbygging, mobile-first aðgengi og vel skipulagðar þjónustusíður gera notendum auðvelt að nálgast efnið. Útkoman er hagnýtur og notendavænn vefur sem endurspeglar metnað Fugla til framúrskarandi lausna.

Hellisbúar voru fyrstu hönnuðirnir — hellaveggirnir voru þeirra portfolio.

Næsta verkefni

Nýr vefur og hönnunar-kerfi fyrir Orkan

Hönnunarkerfi
Vefsíðuhönnun