
Nýr vefur og hönnunarkerfi fyrir Orkan
Okkar hlutverk
UI Hönnun
Hönnunarkerfi
Hönnunarkerfi
Viðskiptavinur
Orkan
Lýsing
Orkan vann með Jökulá að því að endurhanna vefinn og þróa skalanlegt hönnunarkerfi. Markmiðið var að efla sjálfvirknivæðingu, tryggja samræmt vörumerki og skapa sterkan grunn fyrir áframhaldandi stafræna þróun.
Markmið
Orkan fór af stað með herferð til að efla sjálfvirknivæðingu og stafræna þjónustu, sem kallaði á vef sem er tilbúinn fyrir framtíðina. Jökulá kom að verkefninu til að þróa endurnýtanlegt hönnunarkerfi, endurhanna vefinn með áherslu á sjálfvirkni og UX, einfalda umsóknarferli fyrir eldsneytiskort og þjónustusíður, og tryggja samræmi á öllum stafrænum snertiflötum í takt við uppfært vörumerki Orkunnar



ÁSÝND
Bleikt sett í aðalhlutverk
Vörumerki Orkan er lifandi, leikandi og auðþekkjanlegt — ekki síst vegna einkennandi bleiks litar og kraftmikils leturvals. Nýi vefurinn tekur þessa orku áfram með áberandi notkun á bleiku, á meðan tjáningarríkt letur í stórum fyrirsögnum gefur viðmótinu sterkan karakter og persónuleika. Samræmi milli markaðsefnis, vefs og annarra stafrænna lausna var lykilatriði, með það að markmiði að skapa samfellda og hnökralausa vörumerkjaupplifun fyrir notendur.




NIÐURSTAÐA
Sveigjanlegt hönnunarkerfi
Útkoman er sveigjanlegt hönnunarkerfi og vefur sem fangar orku Orkunnar á sama tíma og einfaldar upplifun notenda. Verkefnið er byggt á VEVA kerfi Advania og endurspeglar gildi Orkunnar á sama tíma og það styður við langtímamarkmið þeirra í stafrænni þróun.


