Label

Kveikjum áhuga á námi

Okkar hlutverk

Mörkun
Vef hönnun
Myndskreytingar

Viðskiptavinur

SVÞ, VR, LÍV

Lýsing

Ræktum vitið er átaksverkefni VR/LÍV og SVÞ. Markmiðið er að auka þátttöku, efla vitund og bæta aðgengi að úrræðum með leikandi yfirbragði, myndskreytingum og skýrum vef. Verkefnið styður bæði fyrirtæki og starfsfólk í að þróa hæfni sína og halda í við ört breytilegan vinnumarkað.

Vista-táknið er enn floppy diskur— þó flestir í Gen Z hafi aldrei notað einn.

Markmið

Skýrt, lifandi vörumerki og vefur sem hvetur og tengir fólk saman til símenntunar.

Verkefnið

Um verkefnið

Við fengum í hendurnar niðurstöður úr greiningu sem gerð var af Aton. Niðurstöður sýndu meðal annars að starfsfólk hafði áhuga á símenntun en vissi ekki hvar ætti að leita sér upplýsinga og vissi ekki af styrkjum í boði frá atvinnurekendum og stéttarfélögum. Á móti vissu atvinnurekendur ekki að starfsfólk sitt hefði áhuga á símenntun. Við vildum því auka aðgengi upplýsinga, skapa umræðu og vekja athygli. Símenntun er mikilvæg í nútímasamfélagi þar sem fólk er lengur á vinnumarkaði en áður, tæknin þróast hratt sem krefst aukinnar þekkingar og vinnuumhverfi hefur almennt breyst mikið á undanförnum árum

‍

Byrjunin

Nafnið

Til að byrja með þurfti að finna nafn á verkefnið. Við vildum eitthvað eftirminnilegt og einstakt sem lýsir verkefninu á sniðugan hátt. Þannig varð nafnið Ræktum vitið til, stutt og grípandi með góðum takti. Í kjölfarið var farið í hönnun á heildarásýnd. Heimurinn í kringum verkefnið er léttur, uppbyggilegur og jákvæður og endurspeglar það að símenntun getur og ætti að vera
skemmtileg og gefandi.

‍

Yfirbragð

Litapalleta

Þar sem verkefnið er samstarfsverkefni VR og SVÞ þá fórum við í að kanna leiðir til að sameina útlit þeirra. Aðallitur VR er dökkblár og aðallitur SVÞ er appelsínugulur, báðir mjög ákveðnir og sterkir en þeir tóna saman á óvæntan hátt. Litirnir tveir urðu fyrir valinu sem aðallitir og til að vega á móti á þeim var bætt við hvítum og mintgrænum tónum sem mýkja heildarmyndina á sama tíma og hún helst fersk og kraftmikil.

Teikningar

Myndheimur

Myndheimur útlitsins er byggður upp úr mósaíkeiningum sem hægt er að raða á fjölbreyttan hátt. Einingarnar eru abstrakt form sem mynda stærri heildir tengdar námi og starfi — til dæmis blýanta, bækur eða persónur. Í myndunum leynast ýmis smáatriði sem vekja athygli og hvetja áhorfandann til að staldra við og uppgötva það sem felur sig í formunum. Mósaíkkerfið nýtist bæði til að skapa stórar heildarmyndir og til að nota stakar einingar með texta og ljósmyndum. Til að lífga upp á myndefnið eru léttar hreyfingar notaðar, auga sem lítur til hliðar, planta sem vex eða form sem hreyfast mjúklega — sem bæta við dýpt og áhuga.

‍

Vefurinn

Vefsíðan

Vefurinn var hannaður til að styðja starfsfólk og fyrirtæki í verslun og þjónustu á vegferð í átt að ævilöngum lærdómi. Hann er einfaldur, aðlaðandi og auðveldur í notkun, bæði á íslensku og ensku. Á vefnum eru skýrar og gagnlegar upplýsingar um námskeið, styrki og íslenskunám, settar fram á vinalegan hátt. Með góðu skipulagi og tengingum í úrræði hvetur hann fólk til að þróa hæfni sína og auka öryggi í starfi

‍

‍

Yfir 70% skrifstofa eru með plöntu sem allir halda að einhver annar sé að vökva

Næsta verkefni

Byrjum á vörumerkinu

Stefnumótun
Myndmál
Vörumerkja hönnun
Nafnamótun
Hreyfi hönnun