
Mótun vörumerkis fyrir Þétt
Okkar hlutverk
Teikningar
Viðskiptavinur
Lýsing
Frá merki og leturvali til tákna og auglýsingakerfa var vörumerkið hannað til að vera bæði hagnýtt og kraftmikið.
Markmið
Merki
Tákn um formfestu
Táknmerkið var hannað með því að sameina nokkrar lykilhugmyndir: loftun, innri og ytri vegglög og bókstafinn Þ, fyrsta stafinn í nafni fyrirtækisins.
Útkoman er sterkt og minnistætt merki sem endurspeglar bæði tæknilegan heim þéttilausna og kraftinn í nafni vörumerkisins.



Stíll
Áhrifaríkir litir og letur
Vörumerkið byggir á sterkum grænum lit sem aðallit, með dekkri tónum og gráum litum sem undirstrika traust og styrk. Leturvalið gegnir einnig mikilvægu hlutverki. Archivo tryggir skýrleika og faglegt yfirbragð, á meðan Shuttleblock er notað fyrir tölur og grafísk textaelement til að gefa vörumerkinu tæknilegan og iðnaðarlegan blæ.



Kerfi
Mynstur, tákn og sjónrænir þættir
Við hönnuðum geometrískt mynsturkerfi sem nýtist í bakgrunnum og skreytielementum og gefur ásýndinni sterkan, samræmdan svip.
Einnig var hannað sérsniðið táknasett, byggt á sama geometríska grunni, svo allt sjónrænt efni upplifist heildstætt, tæknilegt og mótað af nákvæmni.


Útbreiðsla
Auglýsingar, varningur og merkingar
Til að hjálpa Þétt að ná til ólíkra markhópa þróuðum við auglýsingasafn og sveigjanleg sniðmát sem hægt er að aðlaga að mismunandi hópum og skilaboðum.
Auk þess var hannað fjölbreytt úrval af varningi og merkingum, sem tryggir að vörumerkið birtist með samræmdum og faglegum hætti á öllum snertiflötum við viðskiptavini.



